Thursday, July 31, 2008

morgundögg

við fórum í sveitina í gær og það var svo gaman!:D
Síðan brunuðum við í bæinn og fórum í mat til Kötu mömmu Stellu og Helgi bróðir kom eftir síðasta vinnudaginn sinn áður en þau flytja út:)
Jóna sæta sótti mig svo og við fórum til Soffíu með Kötu, Svönu og Sæunni sem var að koma austur og við spiluðum og drukkum bjór.

í mogrgun vaknaði ég við Markús yndi og fékk heitt kaffi hjá Ósk, morgundöggin klikkar aldrei;)
Svo flyt ég til Jónu í kvöld og verð þar yfir helgina, því pabbi og Ingi koma á morgun og ég er að fara að djamma með krökkunum. Já Neistaflugið er byrjað, við ætlum í drullufótboltann í kvöld og svo að tjútta þar sem Hlynur Ben spilar.

Heiða sæta fer til Danmerkur á morgun, góða ferð beibí:)
Góð helgi framundan....

Gerður:)

Wednesday, July 30, 2008

Sól og sumar...

Í gær fórum við í kaffi til Vigga og Jóu, þar fengum við bara nýbakað og alles:) Við ætluðum að fara að hoppa í ána en það voru allir svo þreyttir og veðrið í Seldal ekki alveg jafn æðislegt og hér hjá okkur...
Svo fórum við öll til Kobba (eldri) í mat þar sem Ósk eldaði kjúlla fyrir liðið:) ég og Jóna fórum svo að hitta Kötu, Svönu og Soffíu og við tókum bílhring. Eftir það fórum við til Guðnýjar og pössuðum yfir vídjómynd.

Í dag fór ég með Ósk, mömmu, Markúsi og Matthildi í gönguferð á Þiljuvelli 30 og í bæinn og svo var kaffi hér hjá okkur. Friðrik og Ída komu og tóku mig og Markús með að hitta Vigga, Jóu og Kobba þar sem þau voru að taka bátinn í land og laga. Markús alveg að fíla sig í tætlur.
Nú erum við að fara að borða öll saman nesti í sveitinni, myndir koma inn seinna beibís.

Gerður:)

Monday, July 28, 2008

Neskaupstaður


já ég og mamma vöknuðum eldsnemma, ég var auðvitað alls ekki sátt þar sem ég var ekki búin að jafna mig eftir helgina. Við fórum svo í þessa líka skemmtilegu göngu, hörkuduglegar, aðallega mamma þar sem hún er nú í gifsi, eins og markús sagði fótbrotin á hendinni..
Mér tókst að næla mér í meiri lit (rauðan) og fá 3 blöðrur:(
Svo brunuðum við í bæinn og hittum Ósk, Markús og Matthildi sem voru að koma og við kíktum í bæinn, fórum í heimsókn til Siddu þar sem Lucian og Breki voru. Svo fórum við heim þar sem ég eldaði pylsur (snillingur í því núna..)
Þessi ferð hefur verið æðisleg í alla staði. Krakkarnir eru sofnaðir og við sitjum hér mæðgur saman. Ég bjó til myndasíðu, hún er www.flickr.com/photos/gerdurgudm

Knús og kossar á alla heima, kv. Gerður:)

Sunday, July 27, 2008

Helgin


Föstudagur 25. júlí

Ég og mamma vöknuðum eldsnemma og fórum á Akureyri. Þar fórum við á kaffihús og hittum Guðnýju sem fór með okkur á nokkrar listasýningar. Ég og mamma fórum svo í heimsókn til Hjördísar í nýja húsið sem er alveg æðislegt.
Við borðuðum svo hjá Guðnýju og Einari, fengum mjög gott lasanja og sátum svo úti allt kvöldið og höfðum það mjög kósí í góða veðrinu:)

Laugardagur 26. júlí

Við vöknuðum snemma og fengum okkur morgunmat í góða veðrinu. Fórum svo af stað til Norðfjarðar, stoppuðum á leiðinni til að fá okkur smá sól og mat:) Þegar ég var að koma á Egilstaði hringdi Friðrik frændi minn í mig og hann og Björg pikkuðu mig upp og ég skellti mér á Bræðsluna:)
Eftir 2 mín. þar hitti ég Kötu sem var með mér í bekk, svo hitti ég Ísleif frænda og svo Kobba frænda og vini hans. Jóna og allar stelpurnar voru þarna í stuði.
Endalaus gleði þarna, grill, sól, bjór og gítar, svo auðvitað brjálaðir tónleikar:D
Eftir tónleikana hélt gítarstemmingin áfram.
Svo fór ég með Kobba upp á hól með sjálfum Damien Rice og þar var spilað og sungið.


Sunnudagur 27. júlí

Vöknuðum í sól og svitabaði. Fengum okkur að borða í sólinni. Erum allar búnar að taka lit, frekar rauðan en brúnan...
Fórum á Egilstaði og fengum okkur borgara áður en við keyrðum á Neskaupstað (sem er alveg jafn æðislegur staður og mig minnti..)

Helgin var í heild sína með þeim betri sem ég hef átt í lífinu. Takk kærlega fyrir mig:)