Wednesday, July 30, 2008

Sól og sumar...

Í gær fórum við í kaffi til Vigga og Jóu, þar fengum við bara nýbakað og alles:) Við ætluðum að fara að hoppa í ána en það voru allir svo þreyttir og veðrið í Seldal ekki alveg jafn æðislegt og hér hjá okkur...
Svo fórum við öll til Kobba (eldri) í mat þar sem Ósk eldaði kjúlla fyrir liðið:) ég og Jóna fórum svo að hitta Kötu, Svönu og Soffíu og við tókum bílhring. Eftir það fórum við til Guðnýjar og pössuðum yfir vídjómynd.

Í dag fór ég með Ósk, mömmu, Markúsi og Matthildi í gönguferð á Þiljuvelli 30 og í bæinn og svo var kaffi hér hjá okkur. Friðrik og Ída komu og tóku mig og Markús með að hitta Vigga, Jóu og Kobba þar sem þau voru að taka bátinn í land og laga. Markús alveg að fíla sig í tætlur.
Nú erum við að fara að borða öll saman nesti í sveitinni, myndir koma inn seinna beibís.

Gerður:)

No comments: