Föstudagur 25. júlí
Ég og mamma vöknuðum eldsnemma og fórum á Akureyri. Þar fórum við á kaffihús og hittum Guðnýju sem fór með okkur á nokkrar listasýningar. Ég og mamma fórum svo í heimsókn til Hjördísar í nýja húsið sem er alveg æðislegt.
Við borðuðum svo hjá Guðnýju og Einari, fengum mjög gott lasanja og sátum svo úti allt kvöldið og höfðum það mjög kósí í góða veðrinu:)
Laugardagur 26. júlí
Við vöknuðum snemma og fengum okkur morgunmat í góða veðrinu. Fórum svo af stað til Norðfjarðar, stoppuðum á leiðinni til að fá okkur smá sól og mat:) Þegar ég var að koma á Egilstaði hringdi Friðrik frændi minn í mig og hann og Björg pikkuðu mig upp og ég skellti mér á Bræðsluna:)
Eftir 2 mín. þar hitti ég Kötu sem var með mér í bekk, svo hitti ég Ísleif frænda og svo Kobba frænda og vini hans. Jóna og allar stelpurnar voru þarna í stuði.
Endalaus gleði þarna, grill, sól, bjór og gítar, svo auðvitað brjálaðir tónleikar:D
Eftir tónleikana hélt gítarstemmingin áfram.
Svo fór ég með Kobba upp á hól með sjálfum Damien Rice og þar var spilað og sungið.
Sunnudagur 27. júlí
Vöknuðum í sól og svitabaði. Fengum okkur að borða í sólinni. Erum allar búnar að taka lit, frekar rauðan en brúnan...
Fórum á Egilstaði og fengum okkur borgara áður en við keyrðum á Neskaupstað (sem er alveg jafn æðislegur staður og mig minnti..)
Helgin var í heild sína með þeim betri sem ég hef átt í lífinu. Takk kærlega fyrir mig:)

No comments:
Post a Comment